30.3.09

Falleg, bráðgáfuð og meðalgrönn kona á besta aldri

Búin að vera að hlusta á Kalla á þakinu þessa síðustu daga með henni Doppu minni. Henni finnst hann alveg bráðskemmtilegur, enda hefur hún skemmtilegan húmor stelpan.
Svo er ég barasta að verða þrjátíu ára eftir bara einn mánuð rúman. Það verður gaman að prófa að vera á fertugsaldri.
Ég spái því að ég verði bæði mikið skynsamari og mikið þolinmóðari.
Ég hlakka til.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Held að þú breytist ekki neitt þann 1. maí n.k.
Takk fyrir ánægjulega stund með ykkur í gær (sunnud) og góða steik. kv.Pa.

Nafnlaus sagði...

Ég ELSKA þig nákvæmlega eins og þú ert :D

Sóley