Maðurinn minn fór út á sjó. Það er skrýtið að vera án hans. Hann er búinn að vera á Íslandi síðan í nóvember og mér fannst bara mjög gott að hafa hann svona nálægt mér.
Stormurinn minn varð 10 ára um daginn og við héldum svaka afmælispartý hérna á sunnudaginn.
Á laugardaginn fór ég á námskeið fyrir foreldra barna með Tourette heilkennið.
Það var mjög fróðlegt.
Svo eru þetta svona dálítið skrýtnir dagar.
Ég syrgi, án þess að vera mjög sorgmædd.
Finnst gott að huxa um frænda og rifja upp minningar um hann.
Ég veit samt að næsti laugardagur verður erfiður.
Það er allt í lagi.
Ég kemst yfir það.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Mér finnst það pínu skemmtilegt hvað þú saknar hans, það sýnir að þú ert ekki orðin leið á að hafa hann heima, ekkert : það er bara gott að vera án hans attitude..
Ég hlakka til að heyra um námskeiðið ;o)
Það gleður mig að þú ert að rifja upp minningar,
sakna þín
Sóley
Dóttlan mín. Þú ert alltaf svo skemmtilega málefnaleg. Ekkert fum né fát kring um hlutina. Þeir eru bara svona. Hlakka til að vera með þér á laugardaginn, þó svo að ferðin sé ekkert tilhlökkunarefni. Knús og kossar í húsið.
PS. Veistu um eitthvert hús á Stokkseyri, Eyrarbakka sem fæst fyrir 1.6 í útborgun. Mammamma.
Mikið er gaman að lesa bloggið þitt. Ég þrælsakna þín og vildi að þú byggir nær mér. Þó að ég þykist vita að þér líði vel þar sem þú ert.
Ást.
Solla
Skrifa ummæli