Það sagði hún Doppa mín í gær þegar ég var að hjálpa henni upp úr baðinu.
Ég hef sérlega gaman að svona pælingum og ákvað að leiða hana aðeins áfram.
M: Hvar er hjartað þitt?
D: Það datt í baðið.
M: En af hverju settiru það í bað?
D: Það var skítugt.
M: En hvar er það núna, hvernig get ég þurrkað það?
D: Æ ég setti það hjá skúffunni inní þínu herbergi.
M: Af hverju gerðiru það?
D: Svo það yrði ekki skítugt aftur...
Ég elska litlu Doppuna mína.
Í morgun bauð hún mér í sérstakt konukaffi í leikskólanum í tilefni af konudeginum sem er á sunnudaginn.
Þegar við komum inn gaf hún mér rós sem hún hafði föndrað og bauð mér svo kaffi og konfekt.
Eftir smá stund í spjalli með hinum kellingunum kom hún til mín, tók rósina, horfði fallega á mig og brosti og sagði: Mamma, nú áttu að fara!
Ég stóð upp og þakkaði fyrir mig. Kyssti litlu ákveðnu stelpuna mína bless og var svo stolt að ég táraðist.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Yndislegt, ekkert annað !! ;D
Kv.Magga
Já hún er dásamlegt barn hún Doppa.
Hún var strax ákveðin í að komast inn í þessa fjölskyldu. Skítt með það að fjölskyldan leigði litla námsmannaíbúð, mamma hennar væri í háskólanámi og pabbi hennar í vinnu erlendis (ekki þegar hún varð til)
Henni fannst sjálfsagt að bætast í hópinn og verða fjórða barn foreldra sinna, skítt með það þó þau hefðu alveg nóg á sinni könnu. Þar sem er nóg hjartapláss þar er alltaf pláss.
Hún Doppa var heppin að velja ykkur.
Ástarkveðja frá mömmömmu
En sætt.
Móðursystir vestsn árinnar.
Það er jafn gaman að fylgjast með henni og hinum, elska þau öll ;o)
Sóley
Skrifa ummæli