10.2.09

Ég er æði!!!

Takk fyrir að rúnka egóinu mínu kæru kommentendur.
Ég er búin að vera að vinna meira en venjulega þessar síðustu tvær vikur. Það er rosalega gott. Mér finnst gott að vinna úti. Mér finnst gott að hitta skemmtilegt fólk í vinnunni og mér finnst rosalega gott að koma heim í hasarinn þegar ég er BARA búin að vera að vinna allan daginn.
Svo fæ ég að vera á bakvakt, og það finnst mér sko skemmtilegt.

Hvað um það.
Þótt það sé gott að vinna, þá er ég samt ekki komin með mjög harðan skráp ennþá.
Ég tek það ofsalega nærri mér þegar fólk kemur til mín og er mjög veikt.
Ég tek það ofsalega nærri mér þegar fólk kemur til mín og er slasað.
Ég tek það ofsalega nærri mér þegar börn koma til mín slösuð, og ég tek það nærri mér þegar foreldrarnir eru áhyggjufullir.
Ég þarf að herðast.
Hver hefði nú trúað því???

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jamm... þetta eru trúlega arfur ættar þinnar...eða þannig sko....en nú hef ég kvittað fyrir innlitið.kv. pa.

Nafnlaus sagði...

Já svona er lífið. Mikið er ég fegin að þú tekur svona hluti nærri þér. Ef þú gerðir það ekki þá væri illa komið fyrir þér. Auðvitað herðist maður með árunum og tárunum og því veit ég að þetta kemur hjá þér.

Þú verður orðin eins og hákarlalykkja um áttrætt, gegnþurr og með harðan grófan skráp.

Nei bara djók, þú verður aldrei þannig þú ert allt of hlý manneskja til þess. Ástarkveðja í kotið frá mömmömmu.

Nafnlaus sagði...

Tek undir með mömmömmu, er glöð að þú ert ekki harðsoðin í gegn..

Mikið svakalega er ég líka glöð að þú fílar vinnuna þína !
Vildi að þú fengir meira af henni !