14.12.08

Þrjú ár síðan Doppa fæddist

Fljótur að líða tíminn.
Segir maður það ekki alltaf þegar maður horfir til baka og huxar um eitthvað skemmtilegt? Líklega er tíminn barasta fljótastur að líða þegar maður huxar um hann seinna.
Stundum líður tíminn minn ofsalega hratt. Alltaf þegar þarf að gera eitthvað til dæmis. Þá er hann alltaf búinn áður en ÉG er búin.
Stundum líður hann lúshægt. Bara til dæmis þegar Gamli er ALVEG að fara að koma heim.
En svona er þetta, og þess vegna er það líklega sem fólk segir að tíminn sé afstæður. Af því hann virðist aldrei vera eins.
(Eða þegar kellingar vilja vera yngri en þær eru...)

Allavega. Hún fæddist fyrir þremur árum þessi elska.
Hún var fljót að koma sér út þegar henni loxins þóknaðist að byrja.
Hún er mjög sjálfstæð, var þá og er enn. Algjört kjarnorkukvendi.
Gat gert fólk orðlaust áður en hún talaði almennilega.
Gat hlaupið áður en hún stóð.
...nei, ekki alveg.
En hún er frábær. Eins og hinir grísirnir mínir allir.
Ég er rosalega ánægð með þau, þessar elskur.
Hér var vinum og vandamönnum boðið í gúllassúpu og heimabakað brauð að hætti hússins, og afar afar bleika kremköku, með miklum þriggjáraskreytingum.
Gaman að hitta allt þetta fólk.
Gaman að vera til.
Gott að fara uppí á eftir.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir góða afmælisveislu gullin mín. Mammamma

Steinunn Elsa Bjarnadóttir sagði...

Til hamingju með dótturina. Var að fatta ég steingleymdi að afboða okkur. Systkini mín og mamma mættu til mín í gær og voru bökuð stór fjöll af smákökum.