30.12.08

Júdó

Við hjónin fórum í gær til Reykjavíkur.
Við fengum dágóða peningaslummu í jólagjöf og ákváðum að nota peningana til að kaupa hinar langþráðu júdódýnur í stofuna.
Þær eru geggjaðar. Þetta er algjör draumur.
Þið bara verðið að koma og veltast um á stofugólfinu hjá mér.
Svo fáiði kannski kaffi á eftir.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

....jepps þær eru geggjaðar...ég er sko búin að prufa að veltast um á þeim...mæli með því fyrir alla!!!

knús í kotið

Hanna Mjöll

Nafnlaus sagði...

Ég svaf á þeim aðfaranótt 3.janúar með sonarsyni og dóttursyni. Ansi harðar fyrir heldri frýr en maður svaf nú samt.