10.12.08

Ég sá mömmu kyssa jólasvein

Ég fór með 7. bekk í bíó í gær.
Myndin var Twilight og hún var ofsalega rómó og skemmtileg.
Þetta eru ótrúlega skemmtilegir krakkar, og gaman að rugla svoldið í þeim.

Júdómót á morgun, og þar munu allir keppa nema við Doppa.
Jafnvel gamlinn ætlar að munda júdógallann og taka á nokkrum strákormum þarna.
Það verður gaman að sjá.

Svo er bara ammili um helgina. Doppa jólastelpa verður 3 ára.
Hún hlakkar mest til jólanna af öllum. Syngur jólalög stanslaust og brosir út að eyrum allan sólarhringinn.
Já jafnvel þegar pabbi hennar var að hátta hana í gærkvöldi. Þá var hún steinsofnuð, litli anginn, og byrjaði að syngja: Ég sá mömmu kyssa jólasvein.

1 ummæli:

Steinunn Elsa Bjarnadóttir sagði...

Æ litla krúttið, sá myndbrot hjá mömmu þinni þar sem hún söng mama mía, greinilega algjör söngpípa. Góða skemmtun á jódómóti
knús