7.11.08

Gormur kvartar undan sundkennaranum

Gormur minn 7 ára sat við kvöldverðarborðið hérna í vikunni.
Hann sagði að þetta væri alveg hundleiðinlegt með sundkennarann. Hann talaði bara ekki um annað en kreppuna.
Ég var alveg steinhissa. Kannast aðeins við kennarann og fannst það frekar skrýtið að hann væri að æla um kreppu yfir krakkana.
Þá brosir minn voðalega lúmskur og segir:

"Beygja, KREPPA, sundur saman!!!"

"Beygja, KREPPA, sundur saman!!!"

"Beygja, KREPPA, sundur saman!!!"

3 ummæli:

tvina sagði...

GÓÓÓÓÓður

Steinunn Elsa Bjarnadóttir sagði...

hahahaha góður þessi

Nafnlaus sagði...

Haha...hérna á Reykjalundi er það aðeins öðruvísi...
Sú sem er með vatnsleikfimina sem ég er í kom með þessa góðu og auðveldu æfingu í vatninu að teygja fram hendur og kreppa hnefana, draga hendur síðan að sér og banka á bringuna....

Banka.....kreppa....banka.....kreppa ;)