2.10.08

Vantar þig ekki meiri orku?

Í gær hringdi í mig kona. Hún vildi endilega draga mig á Herbalife kynningu.
Ég var eitthvað treg til, fannst henni, svo hún spurði:
"Hvernig er það með þig kona, þarft þú ekki einmitt meiri orku?"
Og ég sagði auðvitað eins og væri að ég þyrfti enga auka orku.
Ég hefði alltaf haft aðeins of mikið af orkunni ef eitthvað væri.
Þar með var ég eiginlega búin að losna undan Herbalife kynningunni, því kona þessi varð alveg orðlaus.
Þegar ég var búin að kjafta aðeins meira við þessa ágætu konu, elda, gefa öllum að borða, ganga frá og koma öllum í rúmið, skreið ég dauðuppgefin upp í mína holu og skammaðist mín fyrir að ljúga að konunni.
Klukkan mín var bara 20.50 og það var ekki arða af orku eftir í mínum beinum...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hvar er uppeldið, var þér ekki kennt að það væri ljótt að skrökva? Þú fengir svartan blett á tunguna, ha? Æi Dóttlan mín, reyndu endilega að hvíla þig eftir puð síðustu 12 ára. Mammamma.

Nafnlaus sagði...

hvað er þetta? Ég þekki bara voða fáa sem hafa ekki þurft að puða einstaka sinnum á æfinni.
Ég er ekkert of góð til þess.
En það er alltaf gott að fara snemma í bælið.

Nafnlaus sagði...

Það er svo gott að geta puðað.
Maður á að þakka það á hverjum degi.
Og svo er dásamlegt að skríða svolítið þreytt í bólið.
Bestu kveðjur,
Sigga móður......