22.10.08

Hélstu kannski að ég yrði duglegri að blogga þegar ég yrði komin með netið heim til mín.
Eh...nóbb!
Á meðan netið náði ekki alla leið á Stokkseyri, datt mér svo margt sniðugt í hug til að skrifa hérna inná. En svo gleymdi ég því jafnóðum. Núna man ég ekkert af því.
Nema eitt kannski:
Það er búin að vera að ganga hlaupabóla í leikskólanum. Doppa mín hefur ekki fengið hana ennþá, en þegar hún var að klæða sig hérna einn morguninn, þá fór hún í bolinn og sagði: Mamma, er þetta hlaupa bolur? Já sagði ég, hann getur verið það.
Þá sagði hún: Vá, ég er líka komin með hlaupa bolina!!!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég var einmitt að hugsa þetta í gær, að ekki hefði nettengingin aukið ritgleðina hjá þér :) en ég er svo kurteis að ég hætti við að setja inn athugasemd. Mikið er samt gaman að sögunum þínum. Kíki reglulega. Kannski kíki ég í kaffi einhvern daginn, hver veit! Kveðja úr Sílatjörninni

Nafnlaus sagði...

Það er eitthvað athugavert við hlaupabólur sem ganga.
Það væri miklu eðlilegra að þær myndu hlaupa, er það ekki??

Kv Jonni