Ég vinn ekki 100% vinnu. Að minnsta kosti ekki utan heimilisins.
Þá daga sem ég vinn, þá vinn ég 8-16 og á svo alveg frí inn á milli. Voða gott.
Þá er nú gott að nota frídagana sína í að taka til og þrífa dáldið hressilega. Fá alveg kast á skúringamoppunni og afþurrkunarklútnum. Þvo mikinn þvott. Og ekki má gleyma því að brjóta saman sokkana, sem vill oft sitja á hakanum hjá mér þegar mikið er að gera.
Hahaha. GLÆTAN!!!
Þegar ég var búin að koma krökkunum af stað í skóla og leikskóla í morgun, hellti ég mér upp á kaffi. Síðan fór ég með kaffið upp í svefnherbergi, lagðist undir sæng með tölvuna í fanginu og SLAPPAÐI AF!!! Ég er að gera það núna sko...
Á eftir þegar ég er búin að slaka og kannski leggja mig aðeins, ætla ég í kaffi til ömmu og eyða þannig fyrri helmingi dagsins í algjörri leti (en ekki eyða í vitleysu, því þetta er nauðsynlegt öðru hvoru)
Svo sjáum við til hvort ég helli ekki sokkunum á rúmið og massa þetta...
...eftir hádegi.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
Það er nú alveg bráðnauðsynlegt að hafa smá tíma fyrir sjálfan sig. Og að leggja sig líka, þarft að hafa kraft til að sinna verkunum þegar að þeim kemur. Og eitt er víst þvotturinn fer ekki neitt
Skrifa ummæli