Gunnar í Krossinum var í viðtali í einhverjum útvarpsþætti sem ég hlustaði á á leiðinni í vinnuna í morgun.
Þar var hann að tala um hvernig hommar gætu snúið frá villu sinni og orðið eðlilegir á ný.
Hann sagði að þetta væri bara eins og með alla aðra syndara, þeir þyrftu bara að iðrast synda sinna og snúa sér að Ésú Kristi. Þá myndu þeir losna við þessar afbrigðilegu hvatir.
Hann var þá spurður um tilfinningar, hvort menn (og konur) ættu þá að hundsa það sem hjartað byði þeim, allar tilfinningarnar. Þá sagði Gunnsi að tilfinningar væru bara afkvæmi huxana okkar, þannig að ef samkynhneigðir huxuðu bara ekki um þessar brengluðu hvatir sínar, þá væri þeim borgið.
Hann velti einnig þeirri spurningu upp hvort að við ættum að halda skrúðgöngu til að fagna manninum sem veltist á merinni sinni (þarna fyrir austan fjall) um árið. Hann hefði jafn afbrigðilegar hvatir og hommar og lesbíur.
Hann velti því einnig fyrir sér hvort að barnaníð væri þá afbrigðileg hvöt sem yrði samþykkt einhvern daginn.
Það sem er svo magnað við þennan Gunnar, kenndan við Krossinn, er hversu mælskur hann er. Hann svarar öllum spurningum strax, á alltaf tilvitnanir og svör við öllu sem sagt er. Sannfæringarkrafturinn er slíkur, að menn hrífast með honum. (að minnsta kosti sumir)
Hins vegar er ég ekki sammála honum að samkynhneigð sé bara einhver synd, sem maður getur beðið sig frá.
Ég hef reyndar ekki persónulega reynslu af samkynhneigð, aðra en þá að ég er mjög hrifin af hinu kyninu.
Ég held að ást og aðrar tengdar tilfinningar séu mjög flókin fyrirbæri.
Eitthvað sem fólk ætti að vara sig á að dæma.
Enda af hverju þurfum við alltaf að vera að hafa skoðanir á öllu?
Má fólk ekki bara vera til eins og það er?
Þarf Pétur og Páll (Og Gunnar) alltaf að vita betur?
Svo er líka annað...
Nefnið umburðarlyndasta og kærleiksríkasta manninn í sögunni...
Ésú
Nefnið þann sem alltaf neitaði að dæma fólk...
Ésú
Nefnið þann sem gaf öllum tækifæri...
Ésú
Ætti Gunnar í Krossinum þá ekki að reyna að lifa eins og Ésú, í stað þess að vera alltaf að þrautrýna í ritningarnar?
Er ekki alltaf sagt að við börnin gerum eins og fyrir okkur er haft?
Annars er ég bara róleg sko...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
3 ummæli:
Jamm og já, þú ert gott efni í prédikara. Þetta er svoooooo rétt hjá þér. Mammamma.
Vel mælt :)
Eigum við ekki bara að gera Gunnar að homma !!
það hlýtur líka að vera hægt líka ; )))
Já, við skulum nú passa okkur á að vera ekki endalaust að skipta okkur af og dæma annað fólk.
Kv. Magga
Skrifa ummæli