
Margar hendur vinna létt verk.
Þess vegna gengur mér svona vel í lífinu. Því ég hef svo margar hendur. Þetta hefur verið leyndarmál lengi, því ég vil komast hjá æstum aðdáendunum.
Það er bara ekki ég að vera með hóp af öskrandi áhangendum á eftir mér allan daginn.
Svo gerði ég mér grein fyrir ákveðinni staðreynd:
Ég ER með hóp af öskrandi áhangendum á eftir mér allan daginn.
Svo ég ákvað að ljóstra upp leyndarmálinu.
Einnig versla ég í búð sem selur aukaklukkustundir í sólarhringinn. Slóðin er http://www.aukastundir.is/
Njótið.
1 ummæli:
Það hlaut að vera, ég hef aldrei skilið hvaða fídonskraftur er í þér stelpa! Gangi þér vel gullið mitt. Ástarkveðja frá mömmömmu
Skrifa ummæli