Ég fékk einkunnina 9 fyrir lokaverkefnið mitt og er auðvitað alveg hæstánægð með það.
Ég var næsthæst í bekknum, og ekki spillir það fyrir. Alltaf gott að vera betri en aðrir.
Ég sit hérna við eldhúsborðið og var á leiðinni í bælið, en þá sótti að mér einhver tregi.
Það er eitthvað pínulítið sorglegt við að þetta sé búið. Þá þarf ég að flytja og skipta um nágranna. Skipta um skóla og leikskóla fyrir börnin, skipta um götu og breyta öllu.
Ég hlakka til, en það er samt ákveðinn endir. Mér hefur liðið mjög vel hérna í Reykjavíkinni þessi ár sem ég er búin að vera í námi.
Þetta hefur verið krefjandi og stundum helvíti erfitt bara, en það er einmitt það sem er svo frábært og skemmtilegt við það. Að fá almennilegt verkefni og gera allt gott úr því.
Þetta er það sem maður kemur til með að muna í ellinni. Skemmtilegu árin þegar maður var alltaf á haus í verkefnum og hamagangi.
Og lét það allt saman ganga upp.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
4 ummæli:
Æðislegt!!!
Til hamingju með þessa frábæru einkunn *knús*
Kv. Tinna
FRÁBÆRT hjá þér góða mín, kemur sko ekki á óvart að þú hafir rúllað þessu svona flott upp, bara eins og öllu öðry sem þú gerir.
Mikið hlakkar mig til og koma að kíkja á ykkur, fer vonandi að róast hjá okkur.
knús Steypa
Til hamingju Þóra mín !!!
Maður kemst ansi langt á jákvæðninni sem ég held að þú hafir fullt af, sem betur fer.
Sigga móður......
Jámm, það er þetta með háskólaárin sem við ræddum um daginn eftir frábæra skemmtun í Borgarleikhúsinu. Laddi er og verður minn maður, takk fyrir að bjóða mér með þér. Til hamingju enn og aftur með þennan frábæra árangur mín kæra. Mammamma.
Skrifa ummæli