Ég er búin með ritgerðina mína.
Yfir-sílið fór yfir hana fyrir mig um helgina.
Takk kæra yfir-síli, þú ert dásamlega og yndislega smámunasöm, og ég er þér óendanlega þakklát.
Leiðbeinandinn fór líka yfir hana um helgina.
Hún sagði að ritgerðin væri ljómandi góð og bað mig að færa eina mynd.
Allir bekkjafélagar mínir sitja sveittir og skælandi af stressi yfir þessum skrifum. Bara 10 dagar í skil!!!
Þetta stressar mig dáldið, því ég hef barasta aldrei heyrt um neinn sem hefur verið búinn með BSc ritgerðina sína hálfum mánuði fyrir deadline, og hefur ekki fengið neinar leiðréttingar eða ábendingar af ráði frá leiðbeinanda sínum. Ég er orðin skíthrædd um að ég hafi misskilið þetta bara eða eitthvað... nei nei segi bara svona.
Annars á ég eina góða sögu:
Gormur, sem verður 7 ára á morgun hefur átt erfiðan fyrsta vetur í skólanum. Hann er ekki að fíla sig og "hatar" skólann á hverjum morgni. Kennarinn heldur að hann sé ólæs og kunni enga stafi eða neitt. Hann er þver og þrjóskur og gerir ekki það sem hann á að gera.
Heima er frekar erfitt að fá hann til að læra, en það hefst með smá spjalli, svona yfirleitt að minnsta kosti.
Í dag var hann að lesa. Stautaði löturhægt orðin í bókinni og giskaði á flest orðin. Hann var allt annarsstaðar og alveg úti að aka.
Ég var orðin nett pirruð á þessum hægagangi. Það endaði á því að ég hvæsti á hann:
"Af hverju í fjandanum lestu ekki bara orðin? Ég veit alveg að þú kannt það vel!!!"
Þá hló hann og sagði:"mér finnst bara svo gaman að stríða þér!"
Svo gaf hann mér krúttlegasta bros í heimi, las allt á ofurhraða og hljóp svo út að leika sér. Ofurglaður Tappi, ekkert að honum!
Hann fékk bara stríðnina úr föðurættinni minni, og kann að beita henni.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
2 ummæli:
Smáfólkið þekkir þanþol foreldranna :) það er ljóst.
Gormur er góður!
Smámunasama yfir-sílið þakkar hlý orð í sinn garð.
Bestu kveðjur frá Selfossi
Guðný Ingvars
Shit, þanþol mitt nægir ekki í að kommenta á blogg þegar ekki seifast á stundinni, núna og strax. Ég sendi þér samúðarkveðjur að vera búin með þessa ritgerð, hún var náttlega pís og keik eins og þín var von og vísa. Mammamma hefur alveg gleymt að tjá sig um menningaratburð helgarinnar í Borgarnesi, þ.e. sýninguna "list án landamæra" sem byrjar hjá okkur næsta sunnudag kl 2 með menningarlegri ræðu ritara. Ég sé því miður ekki að ég sjái neitt ykkar fyrr en að opnun lokinni og er mjög sorrý yfir því, en svona er lífið. Ég hef alltaf lag á að koma mér í of mikið djobb. Mammamma
Skrifa ummæli