Ég á 9 ára brúðkaupsafmæli í dag... eða við hjónin sko!
Í tilefni dagsins eldaði ég uppáhaldsmatinn minn. Skötu.
Hef nú alltaf haldið mig við þorláksmessuna, en ég mátti til þegar ég sá þessa dýrindis bita í fiskbúðinni. Síðustu ár höfum við systkinin hist með foreldrunum heima hjá stóra bróður til að gera skötunni skil. Það er góður dagur.
Pabbi segir alltaf: typical skate, svona í Kristján-heiti-ég-Ólafsson-stíl. Hann segir líka alltaf spakk og hagetti þegar hakk og spaghetti er í matinn. Steikon og begg þegar er beikon og egg. Hann segir baríus og kaktus þegar hann meinar karíus og baktus. Við tvö erum held ég þau einu sem finnst þetta fyndið. En hvað um það.
Pabbi var staddur í bænum í dag, svo ég ákvað að bjóða honum í skötuna.
Sendi honum því sms:
Skeit í kvöldmatinn. Þú ert velkominn.
Mér fannst ég hrikalega fyndin. Alveg þangað til hann kom og ég komst að því að hann hafði ekki fattað að það var skata...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
.... og kom samt! hahaha. Góður! Gangi þér vel með fræðin, mín kæra.
Bestu kveðjur
Guðný & co
Thíhí, ég slæðist í hópinn mér þér og pabba þínum ;Þ
mér finnst þetta nefnilega fyndið líka og brosi útaf eyrum yfir þessari færslu ;D
bestu kveðjur
magga
Hann hefur nú aldrei verið matvandur hann pabbi þinn.
Kveðja Sigga móður......
Til hamingju með 9 árin!
Sem þýðir líka að ég er búin að vera viðloðandi í familíunni í 9 ár...vá tíminn líður hratt :)
Kv. Tinna
Bwahahahahahaha !!
Þú fékkst mig nú til að skellihlæja upphátt núna !! ;o)
Sóley
Skrifa ummæli