Ég var að fá einkunn úr siðfræði. Ég fékk 9,5! Ég er ógeðslega montin með mig. Fékk líka 9 í tölfræði um daginn. Önnin lofar góðu. Annars er allt í roligheden eins og er. Núna eru bara 3 vikur þar til ég fer út að knúsa kallinn minn. Hlakka til þess.
Hérna er smá gys og gaman af honum Gormi mínum sem er 6 ára:
Við fengum lánað á bókasafninu útvarpsleikritið Sitji guðs englar. Hann hefur mjög gaman af því að hlusta á það. Um daginn spurði ég hann hvað hann vildi hlusta á, og hann sagði: Sykursins engla auðvitað!
Um daginn var ég með Egils Kristal með poppinu og myndinni. Ég bauð honum í glas, og hann sagði: Nehei! Ég er sko steinhættur að drekka svona!! Ég spurði hann af hverju, og þá sagði hann: Það sést þegar maður hefur drukkið svona, ég sá það í sjónvarpinu...
(auglýsingin í imbanum segir... það sést hverjir drekka Egils kristal)
Snilld og laggó
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
5 ummæli:
Til hamingju með prófið, ert greinilega ekki í vandræðum með þetta ;D
Og snilldar Gormur, brosi hringinn ;Þ eins og svo oft áður þegar ég les bloggið þitt :)
mér dettur í hug oft þegar ég var að lesa bloggið hennar Kolbrúnar frænku á Hrauni þegar þau bjuggu úti í löndum ;D
það var mjög hressandi og skemmtilegt að byrja daginn á að lesa það líka....
Kv magga
hahahaha hann Gormur þinn er nú bara yndislegur.
Til hamingju með einkunnirnar. Bara flottar!!! Enda ekki við öðru að búast frá þér :)
kv. Steinunn
Mín að massaða eins og vant er. Húrra fyrir þér!!!
Ástarkveðja. Mammamma
Þú ert ótrúleg enda af hinu fullkomna Syðri- Hamrakyni!!!!!!!!
Þú veist að það er fullkomið og ekkert minna en það. Og hann Gormur, greinilega af sama kyni.
Bestu kveðjur, Sigga móður......
Monthæna ;o)
Hann er bara snilld þessi drengur ! Alltaf getur hann látið mann hlæja ;o)
Sóley
Skrifa ummæli